138. löggjafarþing — 85. fundur, 3. mars 2010.
tilkynning um mannabreytingu í nefnd.
Borist hefur bréf frá þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs með ósk um að eftirfarandi breyting verði á mannaskipan í nefnd þingsins í samræmi við 16. gr. þingskapa. Ögmundur Jónasson tekur sæti í félags- og tryggingamálanefnd í stað Árna Þórs Sigurðssonar. Skoðast þetta samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.