framhaldsfundir Alþingis.
Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda fimmtudaginn 2. september 2010 kl. 13.30.
Gjört á Bessastöðum, 31. ágúst 2010.
Ólafur Ragnar Grímsson.
____________________
Jóhanna Sigurðardóttir.“
Ég býð hæstv. forseta og hv. alþingismenn velkomna til þingstarfa og lýsi þeirri einlægu von minni að störf Alþingis verði þjóðinni til farsældar og þinginu til sóma.