140. löggjafarþing — 32. fundur, 6. des. 2011.
fjárlög 2012.
1. mál
Frú forseti. Það var ágætt að heyra þessi ummæli frá hv. þm. Björgvini G. Sigurðssyni. Það ávannst ýmislegt í meðförum fjárlaganefndar á málum á milli umræðna og það er vel. Það bendir til þess að menn hafi fært fram rök og að á sum þeirra raka hafi verið hlustað. Það er gleðilegt að sjá þegar það gerist, ég hefði viljað sjá það gerast í fleiri málum en að sumu leyti eru menn á réttri leið og það ber bara að virða það.