140. löggjafarþing — 77. fundur, 27. mars 2012.
ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga.
636. mál
Hæstv. forseti. Mig langar til að spyrja hv. þm. Helga Hjörvar um hvaða ályktun hann treysti sér til að draga af því ef meiri hlutinn í þjóðaratkvæðagreiðslu segir annaðhvort já eða nei við fyrri spurningunni í þingsályktunartillögu meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.