140. löggjafarþing — 106. fundur, 24. maí 2012.
fjárfestingaráætlun fyrir Ísland 2013-2015, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vona að hæstv. forseti hafi skilning á því að ég tel eðlilegt að hinkra í nokkrar mínútur þar til þingmenn mæta í þingsal. Hér eru tveir eða þrír þingmenn og ég tel að við séum að fara að ræða mikilvægt mál og að ástæða sé til að hafa fleiri viðstadda.