143. löggjafarþing — 75. fundur, 14. mars 2014.
umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.
340. mál
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður er duglegur að túlka orð sem falla í þessum ræðustól, orð þingmanna eða ráðherra, eftir sínum eigin huga. Ég segi hins vegar enn og aftur: Ég vonast til og treysti því að nefndin fari vandlega yfir þetta mál. Ég ætla ekki að gefa nefndinni ordrur um það hvernig hún á að fjalla um það, ég treysti henni fyllilega til að skoða allar hliðar á því.