dagskrá næsta fundar.
Eins og lesið var upp á þingfundi í gær barst forseta í gær dagskrártillaga, svohljóðandi:
„Við undirrituð gerum það að tillögu okkar, í samræmi við 1. mgr. 77. gr þingskapalaga, að dagskrá næsta fundar verði svohljóðandi:
1. Störf þingsins.
2. Raforkulög (kerfisáætlun, EES-reglur), stjórnarfrumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra, 305. mál, þskj. 1005, nefndarálit á þskj. 1091 og 1226, breytingartillaga á þskj. 1092 og 1227, 3. umr.
3. Stefna stjórnvalda um lagningu raflína, stjórnartillaga iðnaðar- og viðskiptaráðherra, 321. mál, þskj. 392, nefndarálit á þskj. 973 og 986, framhaldsnefndarálit á þskj. 1228, framhald síðari umr.
Við óskum eftir því að þessi tillaga verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“
Undir þetta bréf rita Jón Þór Ólafsson, Katrín Júlíusdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir og Björt Ólafsdóttir.