144. löggjafarþing — 105. fundur, 12. maí 2015.
áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
244. mál
Virðulegi forseti. Ég get ekki svarað fyrir skoðanir annarra, ég stend hér og svara fyrir mína sannfæringu og mína skoðun í þessu máli. Ég sagði það fyrr í kvöld að mér fannst ekkert óeðlilegt að nefndin færi yfir málið og kæmi fram með sitt álit. Ég vissi alveg af því, frétti af því hvað væri í gangi innan nefndarinnar og ég var ekkert að þvinga það starf sem þar fór fram. Ég segi það hér enn og aftur.