145. löggjafarþing — 111. fundur, 17. maí 2016.
frumvarp um tollasamning.
Virðulegur forseti. Aðeins vegna næsta dagskrármáls, virðulegur forseti. Ég átti þess hálfpartinn von að á dagskrá sama fundar yrði tollasamningur sá sem snertir mjög landbúnaðinn eins og búvörusamningurinn. Ég vildi bara kanna hjá hæstv. forseta hvort ekki sé þá alveg ljóst að hann verði á dagskrá á morgun eða einhvern allra næstu daga þannig að bæði þau mikilvægu mál sem varða landbúnaðinn svo mikið séu til umfjöllunar á sama tíma.