145. löggjafarþing — 131. fundur,  8. júní 2016.

þingfrestun.

[21:25]
Horfa

forsætisráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 145. löggjafarþings, frá 8. júní 2016 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 15. ágúst 2016.

Gjört á Bessastöðum, 8. júní 2016.

 

Ólafur Ragnar Grímsson.

_____________________

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Bréf forseta Íslands um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég yfir því að fundum Alþingis, 145. löggjafarþings, er frestað.