148. löggjafarþing — 61. fundur,  9. maí 2018.

um fundarstjórn.

[18:52]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti biður hv. þingmann að leggja sér ekki orð munn eða gera sér upp skoðanir. Það var alls ekki þetta sem forseti sagði hér áðan. En kannski er ástæðulaust að hafa þá uppi rökræður um þessa hluti. Forseti kýs að tjá sig ekki frekar um þetta, mun frekar ræða það við formenn fastanefnda og telur almennt heppilegri vettvang að við reynum að bæta vinnubrögð okkar í sameiningu og ræða það sem á bjátar utan veggja þingsalarins.