Frestun á skriflegum svörum.
Borist hafa bréf frá eftirfarandi ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum:
Frá utanríkisráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 254, um íslenska ríkisborgara á Bretlandi og útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, frá Jóni Steindóri Valdimarssyni.
Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 257, um þýðingu á íslenskum lögum og reglugerðum, frá Jóni Steindóri Valdimarssyni.
Frá umhverfis- og auðlindaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 262, um þýðingu á íslenskum lögum og reglugerðum, frá Jóni Steindóri Valdimarssyni.