149. löggjafarþing — 34. fundur,  20. nóv. 2018.

rannsókn kjörbréfs.

[13:34]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá 7. þm. Norðaust., Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir að í dag taki Berglind Häsler sæti á Alþingi en hún er 4. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu. Varamenn ofar á lista hafa boðað forföll.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Berglindi Häsler. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kjörbréfið.