149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.

549. mál
[14:05]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég fagna því frumvarpi mjög og hef gert það úr þessum ræðustól. Ég segi: Ég mun styðja öll góð mál og hreinsun í lagasafninu okkar er klárlega eitt af þeim málum sem ég mun styðja. Ég styð það heils hugar að við komum því í gegn.