149. löggjafarþing — 103. fundur, 13. maí 2019.
barnaverndarlög.
126. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Í rauninni hef ég svo sem engu að bæta við mína lofræðu hérna áðan. Ég skil mætavel tilganginn með refsirammanum þó að ég geri mér grein fyrir að hann stingi svolítið í augun. En ég segi bara: Ég hef engu við þetta bæta. Þetta er flott frumvarp.