149. löggjafarþing — 105. fundur, 15. maí 2019.
ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
777. mál
Herra forseti. Ég geri athugasemd við það að hér komi þingmenn undir því yfirskini að þeir ætli að ræða fundarstjórn forseta en gera það ekki heldur fari í efnislega umræðu um mál sem hefur verið til umfjöllunar. Ég geri athugasemd við það að forseti hagi fundarstjórn með þeim hætti að mönnum sé leyft að fara í efnislega umræðu undir því yfirskini að rætt skuli um fundarstjórn forseta.