149. löggjafarþing — 129. fundur, 20. júní 2019.
breyting á þingsályktun nr. 10/148 um fjármálastefnu 2018--2022.
953. mál
Virðulegi forseti. Með þessum breytingartillögum er brugðist við breytingum á efnahagsástandi með því m.a. að auka óvissusvigrúm, með því að hægja á niðurgreiðslu skulda og bæta aðeins í tekjuöflun. Engu að síður eru greiðslur til lífeyrisþega hækkaðar.
Hér er skynsamlega brugðist við breyttu ástandi og ég segi já.