149. löggjafarþing — 132. fundur, 2. sept. 2019.
ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
777. mál
Herra forseti. Þegar við tökum afstöðu til vandmeðfarinna mála þurfum við að gera það á grundvelli upplýsinga en ekki upphrópana, á grundvelli staðreynda en ekki stóryrða. Þess vegna segi ég já. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)