150. löggjafarþing — 15. fundur,  9. okt. 2019.

tekjuskattur.

96. mál
[19:28]
Horfa

Flm. (Óli Björn Kárason) (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, með síðari breytingum, félög undanskilin fjármagnstekjuskatti, á þskj. 96. Flutningsmenn ásamt mér eru hv. þingmenn Haraldur Benediktsson, Brynjar Níelsson, Jón Gunnarsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason og Bryndís Haraldsdóttir.

Frumvarpið hefur áður verið lagt fram en ekki náð fram að ganga. Tilgangur þess er að félög sem eingöngu eru rekin til almannaheilla og eru undanskilin skattskyldu er varðar tekjuskatt verði einnig undanskilin fjármagnstekjuskatti. Ljóst er að stór hluti og oft einu tekjur þessara félaga eru fjármagnstekjur, til að mynda í tilfelli sjóða sem styrkja menntastofnanir, námsmenn, heilbrigðisstofnanir o.s.frv., og dæmi eru um að lítið sé eftir til að sinna upphaflegum tilgangi þar sem fjármagnstekjuskatturinn étur allt upp.

Samkvæmt 4. mgr. 71. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, er tilgreindum aðilum sem undanþegnir eru tekjuskatti skylt að greiða fjármagnstekjuskatt af tilteknum tekjum sem skilgreindar eru. Skattskyldan tekur m.a. til lögaðila sem eru heimilisfastir hér á landi og verja hagnaði sínum einungis til almannaheilla og hafa það að einasta markmiði samkvæmt samþykktum sínum.

Frumvarp þetta mælir fyrir um að lögaðilar sem uppfylla skilyrði 4. töluliðar 4. gr. laganna um undanþágu frá tekjuskatti skuli einnig vera undanþegnir fjármagnstekjuskatti.

Sú almenna regla gildir að allir lögaðilar eru skattskyldir. Frá þessari reglu má finna undantekningar í 4. gr. tekjuskattslaga, þó skipta aðallega tvær undantekningar hér máli, þ.e. samkvæmt 4. og 5. tölulið 4. gr. Annars vegar er um að ræða lögaðila sem stunda atvinnu og verja öllum hagnaði sínum til almannaheilla og hins vegar þá lögaðila sem stunda ekki atvinnu. Almennt reynir ekki á undanþágu þeirra lögaðila sem stunda atvinnu fyrr en við framtalsskil þar sem undanþágu frá skattskyldu er borið við og þá í þeim tilvikum þegar starfsemi er rekin með hagnaði. Samkvæmt upplýsingum ríkisskattstjóra er látið reyna á undanþáguna frá einu rekstrarári til annars og ræðst undanþágan eðli máls samkvæmt af ráðstöfun hagnaðar. Sé lögaðili aftur á móti rekinn með tapi kann öðru máli að gegna.

Þeir lögaðilar sem fella má undir undanþáguákvæði 4. töluliðar 4. gr. tekjuskattslaga eiga það sameiginlegt að stunda rekstur eða atvinnustarfsemi og ber þeim að skila árlega skattframtali rekstraraðila RSK 1.04 ásamt ársreikningi í samræmi við ákvæði 1. mgr. 90. gr. tekjuskattslaga. Þessir aðilar eru í skattgrunnskrá skráðir með gjaldstig til tekjuskatts, en þeim er síðan heimilt, svo lengi sem þeir uppfylla skilyrði 4. töluliðar 4. gr., að bakfæra eða fella hagnað undan skattskyldu þannig að ekki komi til skattlagningar hans. Þessir aðilar bera hins vegar fjármagnstekjuskatt í samræmi við ákvæði 4. mgr. 71. gr. Atvinnustarfsemi hefur verið skilgreind þannig að um sé að ræða reglubundna atvinnustarfsemi sem stunduð er samfellt og í nokkru umfangi í hagnaðarskyni.

Samkvæmt 5. tölulið 4. gr. laganna eru félög, sjóðir og stofnanir sem ekki reka atvinnu undanþegin almennri tekjuskattsskyldu en bera skyldu til greiðslu fjármagnstekjuskatts. Meiri hluti þessara aðila er skráður í fyrirtækjaskrá sem félagasamtök og í skattgrunnskrá sem óframtalsskyldir án gjaldstigs til almenns tekjuskatts.

Þessir aðilar, sem geta haft tekjur sem varið er til almannaheilla og sem ekki tengjast atvinnustarfsemi, svo sem styrki, félagsgjöld og tekjur af happdrættum, skila skattframtali ef þeir greiða tryggingagjald vegna launagreiðslna, fjármagnstekjuskatt af fjármagnstekjum sem ekki var tekin staðgreiðsla af eða ef þeim ber að skila virðisaukaskatti. Ef ekkert af þessu á við þurfa þessir aðilar ekki að skila skattframtali og afdreginn fjármagnstekjuskattur og innborgun hans á staðgreiðsluári telst endanleg álagning.

Meðal þessara félagasamtaka er fjöldi aðila sem sinnir málefnum sem teljast til almannaheilla. Þessir aðilar geta raunar verið eigendur að félögum sem falla undir undanþáguákvæði 4. töluliðar 4. gr.

Félagasamtök eru ekki sérgreind í fyrirtækjaskrá með þeim hætti sem hér er til umfjöllunar frekar en almannaheillafélög. Þau eru án gjaldstigs til almenns tekjuskatts í skattgrunnskrá og skila aðeins skattframtali á áður tilgreindum forsendum. Þau hafa ekki verið flokkuð í skattgrunnskrá á grundvelli skráðs tilgangs þeirra, enda liggja þær upplýsingar ekki fyrir í fyrirtækjaskrá. Frumvarp þetta nær ekki til slíkra félaga.

Samkvæmt upplýsingum frá síðasta ári voru á skrá ríkisskattstjóra 73 lögaðilar sem fengið höfðu formlega staðfestingu á því að hagnaði af atvinnustarfsemi þeirra væri varið til almannaheilla og höfðu þar með fengið undanþágu frá greiðslu almenns tekjuskatts af þeim hagnaði. Upplýsingar um aðila sem fengið hafa undanþágu frá greiðslu tekjuskatts í samræmi við gildandi tekjuskattslög og á grundvelli sambærilegra ákvæða í eldri tekjuskattslögum eru hins vegar ekki fullkomnar samkvæmt upplýsingum ríkisskattstjóra.

Miðað við staðgreiðsluskil fjármálastofnana nam afdregin staðgreiðsla af vöxtum þeirra aðila sem hér um ræðir á árinu 2017 28,6 millj. kr. af fjármagnstekjum að fjárhæð rúmlega 144 millj. kr. og árið á undan, árið 2016, var afdregin staðgreiðsla 27,6 millj. kr. af fjármagnstekjum að fjárhæð 136,6 millj. kr. Samkvæmt upplýsingum ríkisskattstjóra eru aðrar fjármagnstekjur, svo sem af arði og söluhagnaði hlutabréfa, óverulegar.

Herra forseti. Að lokinni þessari umræðu óska ég eftir að frumvarpið verði sent til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.