150. löggjafarþing — 129. fundur, 29. júní 2020.
Varamenn taka þingsæti.
Borist hafa bréf frá þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins um að hv. 1. þm. Reykv. s., Sigríður Á. Andersen, og hv. 1. þm. Reykv. n., Guðlaugur Þór Þórðarson, verði fjarverandi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi sem varamenn fyrir þau 1. varamenn á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæmunum, Hildur Sverrisdóttir og Albert Guðmundsson.
Þau hafa bæði áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.