151. löggjafarþing — 32. fundur,  7. des. 2020.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Með bréfum, dagsettum þann 4. desember 2020, hefur forseti óskað eftir því, samanber 8. tölulið 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar, Vinnumarkaðsaðgerðir á tímum kórónufaraldurs — Covid skýrsla nr. 2, og við fjárlaganefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar, Áhrif heimsfaraldurs kórónuveiru á ríkisfjármál — Covid skýrsla nr. 3.