151. löggjafarþing — 37. fundur,  14. des. 2020.

kynrænt sjálfræði.

22. mál
[16:45]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég mótmæli því og vísa því algerlega á bug að ég sé að snúa eitthvað út úr. Hér erum við að fjalla um breytingar á lögum um kynrænt sjálfræði og fjalla um þann part í þeim lögum sem fjallar um ódæmigerð kyneinkenni. Það sem hv. þingmaður er að vísa til er ekki partur af ódæmigerðum kyneinkennum.