151. löggjafarþing — 44. fundur, 18. jan. 2021.
framhaldsfundir Alþingis.
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 18. janúar 2021 kl. 15.00.
Gjört í Reykjavík, 13. janúar 2021.
Guðni Th. Jóhannesson.
________________
Katrín Jakobsdóttir.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“
Ég býð hæstv. forseta og hv. alþingismenn velkomna til þingfundastarfa á nýju ári.