151. löggjafarþing — 63. fundur,  3. mars 2021.

reglubundin og viðvarandi upplýsingaskylda útgefenda verðbréfa og flöggunarskylda.

341. mál
[15:36]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Brynjar Níelsson) (S):

Hæstv. forseti. Ég sé að það er brjáluð stemning í þingsalnum en ég mæli hér fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um reglubundna og viðvarandi upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu. Frumvarpið felur í sér innleiðingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins frá 2004 sem er gjarnan nefnd gagnsæistilskipunin. Með þessu frumvarpi er lagt til að sett verði heil ný heildarlög um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa. Tilskipunin mælir einkum fyrir um samræmingu reglna um birtingu reglulegra upplýsinga um útgefendur verðbréfa sem tekin hafa verið til skipta á skipulegum verðbréfamarkaði og um birtingu upplýsinga um breytingu á verulegum hlut atkvæðisréttar eða eignarhaldi í slíkum útgefendum.

Nefndin vekur athygli á því að við framlagningu var frumvarpið merkt röngu löggjafarþingi og telur eðlilegt að það verði lagfært með uppprentun.

Nefndinni barst minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu um breytingar sem einkum eru tæknilegs eðlis og unnar voru í samráði við Seðlabanka Íslands og telur meiri hlutinn þær ábendingar sem fram koma í minnisblaðinu réttmætar og leggur til breytingar á frumvarpinu í samræmi við þær. Meiri hlutinn leggur jafnframt til að heiti frumvarpsins verði stytt, auk þess sem lagðar eru til nokkrar breytingar tæknilegs eðlis sem er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.

Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem lagðar eru til á sérstöku þingskjali.

Smári McCarthy var fjarverandi við afgreiðslu málsins en á álitinu eru, auk mín sem framsögumanns: Óli Björn Kárason formaður, Jón Steindór Valdimarsson, Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Þórarinn Ingi Pétursson.