151. löggjafarþing — 66. fundur,  12. mars 2021.

þingmannanefnd um loftslagsmál.

488. mál
[13:56]
Horfa

Flm. (Rósa Björk Brynjólfsdóttir) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um þingmannanefnd um loftslagsmál.

Tillagan er svohljóðandi:

„Alþingi ályktar að fela forseta Alþingis að skipa þingmannanefnd til að leggja fram tillögur um áherslur Íslands í loftslagsmálum fyrir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem haldin verður í Glasgow í nóvember 2021.

Þingmannanefndin verði skipuð einum þingmanni úr hverjum þingflokki.

Hlutverk nefndarinnar verði að fjalla um og koma fram með tillögur um áherslur Íslands í loftslagsmálum fyrir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Við mótun tillagnanna skal nefndin taka mið af markmiðum Parísarsamkomulagsins. Nefndin skilgreini meginforsendur stefnunnar og setji fram tillögur um markmið Íslands næstu tíu árin og leiðir til að ná þeim.

Þingmannanefndin komi saman eigi síðar en 1. maí 2021 og skili tillögum til forsætisnefndar svo fljótt sem verða má og eigi síðar en 24. september 2021. Tillögurnar verði að því loknu lagðar fyrir Alþingi í formi þingsályktunar og forsætisráðherra falið að hafa þær til hliðsjónar við mótun áherslna Íslands á loftslagsráðstefnunni.“

Herra forseti. Nauðsynlegt er að fram fari breitt pólitískt samráð um áherslur Íslands í loftslagsmálum á næstu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow sem haldin verður í nóvember 2021. Fundinum er ætlað að marka stefnuna næstu tíu árin til að markmiðum Parísarsamkomulagsins verði mætt. Þess má geta að nýkjörinn Bandaríkjaforseti, Joe Biden, hefur lagt áherslu á að Bandaríkin ætli að taka fullan þátt og axla ábyrgð þegar kemur að markmiðum Parísarsamkomulagsins og Evrópusambandið leggur metnað sinn í að ráðstöfunin skili miklum árangri og til marks um það hefur breski forsætisráðherrann, Boris Johnson, gert ráðstefnuna að meginefni í sínu alþjóðastarfi. Aðrar nágrannaþjóðir Íslands hafa sett sér metnaðarfull markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og hafa til að mynda sænsk stjórnvöld sett stefnuna á 63% samdrátt árið 2030 miðað við árið 1990 og yfirlýst markmið danskra stjórnvalda er að draga úr gróðurhúsalofttegundum um 70% yfir sama tímabil.

Herra forseti. Það ríður á að Ísland mæti til fundarins með metnaðarfulla stefnu í loftslagsmálum og skýra, fullfjármagnaða aðgerðaáætlun í málaflokknum. Ísland er í sérflokki þegar kemur að nýtingu endurnýjanlegrar orku og hefur tækifæri til að stíga stór skref á næsta áratug. En þá þarf að byrja strax því nauðsynlegt er að taka sem fyrst markviss skref í átt að metnaðarfullri stefnu Íslands sem kynnt verði á fundinum í Glasgow.

Það verður í höndum næstu ríkisstjórnar en ekki þeirrar sem starfar í dag að taka þátt í fyrirhugaðri loftslagsráðstefnu. Þess vegna er ekki nóg að núverandi ríkisstjórnarflokkar fjalli einir um stefnuna sem borin verður á borð á ráðstefnunni í nóvember 2021 heldur þarf samráð að hefjast sem fyrst til þess að sem víðtækust sátt verði um afstöðu Íslands.

Það er líka einu sinni svo, herra forseti, að málaflokkurinn er það mikilvægur fyrir íslenskt samfélag, svo að ég tali náttúrlega ekki um alþjóðlegt samfélag og á alþjóðavísu, bæði í nútíð og í framtíð, að þjóðþingið og þingflokkarnir þurfa að hafa aðkomu að honum. Þess vegna er lagt til að forseti þingsins komi á fót nefnd þingmanna allra flokka á Alþingi, eins og áður segir, sem fjalli um og eigi aðkomu að markmiðum og stefnu Íslands og málflutningi á vettvangi loftslagssamningsins. Með nefndinni verði tryggt að allir stjórnmálaflokkar hafi tök á að undirbúa sig fyrir aðkomu að ráðstefnunni og málflutningi Íslands vegna þess að við þurfum að leggja áherslu á að sem breiðust sátt og sem fjölbreyttust sjónarmið verði hluti af stefnu Íslands í loftslagsmálum og á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow í nóvember 2021.

Herra forseti. Mér skilst að þingsályktunartillagan muni ganga til hv. umhverfis- og samgöngunefndar. Ég óska eftir því að nefndarmenn í þeirri hv. nefnd fjalli um þingsályktunartillöguna með hraði vegna þess að nú ríður á að aðkoma þingsins að þessari mikilvægu ráðstefnu verði tryggð með þessari þingsályktunartillögu.