152. löggjafarþing — 55. fundur,  23. mars 2022.

andlát Guðrúnar Helgadóttur.

[15:00]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Þær sorgarfréttir bárust okkur alþingismönnum í morgun að Guðrún Helgadóttir, rithöfundur, fyrrverandi alþingismaður og forseti sameinaðs þings, hefði andast í nótt á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík. Guðrúnar Helgadóttur verður minnst með hefðbundnum hætti við upphaf þingfundar á morgun.