Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 43. fundur, 8. des. 2022.
fjárlög 2023.
1. mál
Frú forseti. Samkvæmt fjarvistaskrá þingsins eru sjö stjórnarþingmenn í húsi. Ég veit ekki hversu rétt fjarvistaskráin er, en það er alla vega það sem við getum séð hér á skjá frammi. Ég ætla að ítreka það að ég skora á alla vega helminginn af þessum hv. þingmönnum að koma hér og hlusta á þessar umræður og taka þátt í þeim, sýna okkur þá virðingu vegna þess að allt annað er vanvirðing við þá stofnun sem við erum hér í.