Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

Vestnorræna ráðið 2022.

662. mál
[18:56]
Horfa

Frsm. ÍVN (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég er ekki viss um að ég hafi skilið spurningu þingmannsins alveg en ég ætla samt að reyna alla vega að varpa ljósi á það sem var talað um þarna á þessum ársfundi. Þar var Jenis av Rana gestur sem talaði en hann átti á þeim tíma ekki sæti í Vestnorræna ráðinu en var þar sem ráðherra og flutti ávarp. Þetta mál var í sjálfu sér ekkert rætt neitt frekar á þeim fundi. Færeyingar hafa farið allt aðra leið en við þegar kemur að viðskiptum við Rússa eftir að innrásarstríð þeirra í Úkraínu hófst. En það er ekki mál sem tekið hefur verið upp og rætt á vettvangi Vestnorræna ráðsins neitt sérstaklega.