Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 72. fundur,  6. mars 2023.

varamenn taka þingsæti.

[15:03]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, 3. þm. Norðvest., verði fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Inga Sæland, 7. þm. Reykv. s., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Þá hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Berglind Ósk Guðmundsdóttir, 6. þm. Norðaust., verði fjarverandi á næstunni. Þá hefur borist bréf frá Þórunni Sveinbjarnardóttur, 8. þm. Suðvest., um að hún verði fjarverandi á næstunni.

Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, Friðrik Már Sigurðsson, 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Wilhelm Wessmann, 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, Berglind Harpa Svavarsdóttir, og 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, Guðmundur Andri Thorsson.

Friðrik Már Sigurðsson, Wilhelm Wessmann, Berglind Harpa Svavarsdóttir og Guðmundur Andri Thorsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.