Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 90. fundur,  29. mars 2023.

Störf þingsins.

[15:05]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F):

Virðulegur forseti. Eins og þing og þjóð hefur ekki farið varhluta af kynnti seðlabankastjóri tólftu stýrivaxtahækkunina í röð í síðustu viku. Stýrivaxtahækkanir og verðbólga hækka lánin, matarkarfan er orðin dýrari, tryggingar hafa hækkað. Þær jákvæðu fréttir berast þó að verðbólgan virðist vera að þokast niður. Afleiðingar hækkunar eru auðvitað margþættar. Allt of margir eiga erfitt með afborganir lána og sumir neyðast jafnvel til að selja eignir, sem þó getur reynst erfitt eins og markaðurinn lítur út í dag. Þróunin mun að öllu óbreyttu halda áfram þegar fastir vextir óverðtryggðra lána renna sitt skeið á enda. Þá hefur hlutfall fyrstu kaupenda á fasteignamarkaði dregist verulega saman. Þetta er vond þróun. Húsnæðismarkaðurinn sem hefur verið í mikilli grósku undanfarin ár virðist vera botnfrosinn. Við þurfum á einhverjum tímapunkti að horfa til rýmkunar á reglum og kröfum um veitingu hlutdeildarlána til fyrstu kaupenda. Við þurfum núna að breyta reglum um veðsetningu lána fyrstu kaupenda til að auðveldara sé að festa kaup á húsnæði. Við þurfum núna að greina umhverfi framkvæmdaraðila. Mér þykir líklegast að nauðsynlegt sé að ráðast í sértækar aðgerðir, þótt tímabundnar geti verið, fyrir þá sem fyrirhuga byggingu hagkvæmra íbúða á næstu misserum. Þá ákalla ég lífeyrissjóðina að koma inn með öflugri hætti og taka þátt í uppbyggingu heilbrigðs leigumarkaðar. Þurfi til þess lagabreytingu er það okkar hér á þingi að bregðast við því.

Virðulegur forseti. Það eru ýmis verkfæri til staðar og nú er spurningin um að nýta þau. Ég er tilbúinn til að vinna að lausn mála og kalla eftir því að fleiri verði með mér í því liði.