Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 91. fundur,  30. mars 2023.

drengskaparheit.

[10:34]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd mælir einróma með staðfestingu kosningar Ragnhildar Öldu Maríu Vilhjálmsdóttur og telst það samþykkt án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, 4. þm. Reykv. s., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]