153. löggjafarþing — 98. fundur, 25. apr. 2023.
vopnalög.
946. mál
Virðulegur forseti. Ég hef vissulega heyrt þessum sjónarmiðum hreyft en í þessu frumvarpi er eingöngu tekið til skotvopna og breytinga á þeim lögum en við erum meðvituð um það í ráðuneytinu að það er nauðsynlegt að fara í nánari heildarúttekt og endurnýjun á vopnalögum. En það þótti mikilvægt að bregðast við þessum þáttum sem hér er verið að bregðast við sérstaklega.