154. löggjafarþing — 34. fundur,  21. nóv. 2023.

barnaverndarlög og félagsþjónusta sveitarfélaga.

497. mál
[14:38]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á barnaverndarlögum og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, reglugerðarheimildir. Með frumvarpinu, sem var samið í samráði við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, eru lagðar til afmarkaðar breytingar á barnaverndarlögum og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga í því skyni að tryggja að sá ráðherra sem fer með mál er varða barnavernd og málefni barna og ungmenna samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga hafi viðeigandi heimildir til að setja reglugerðir á því málefnasviði sem undir hann heyrir.

Virðulegi forseti. Með lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, sem samþykkt voru á Alþingi 22. júní 2021, voru gerðar grundvallarbreytingar á stjórnsýslu velferðarmála. Í breytingunum fólst að ný ríkisstofnun, Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, tók til starfa 1. janúar 2022. Stofnunin hefur það hlutverk að fara með eftirlit með gæðum þjónustu sem veitt er á grundvelli nánar tilgreindra laga sem talin eru upp í 1. gr. laganna, þar á meðal barnaverndarlaga og laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Þegar lögin voru samþykkt voru allir þeir lagabálkar sem upp eru taldir í áðurnefndri 1. gr. laga nr. 88/2021 á málefnasviði þáverandi félagsmálaráðuneytis. Með breytingu á skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands í ársbyrjun 2022 voru málefni barna og ungmenna, þar með talin barnavernd og VIII. kafli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, flutt frá félagsmálaráðuneyti til mennta- og barnamálaráðuneytis. Fer Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála því með eftirlit með gæðum þjónustu á grundvelli lagabálka sem heyra bæði undir mennta- og barnamálaráðuneyti og félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, en stofnunin sjálf heyrir undir síðarnefnda ráðuneytið.

Meginverkefni Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála eru fjölbreytt en lúta m.a. að útgáfu rekstrarleyfa ásamt eftirliti með gæðum þjónustu sem fyrr segir. Við vinnslu og undirbúning frumvarps þess er síðar varð að lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála var rík áhersla lögð á að samræma fyrirkomulag leyfisveitinga velferðarþjónustu og skapa heildstætt fyrirkomulag útgáfu rekstrarleyfa og eftirlits. Í þeim tilgangi að samræma og straumlínulaga fyrirkomulag leyfisveitinga og eftirlits var ákveðið að fella brott ákveðnar heimildir ráðherra til setningar reglugerða í öðrum lögum, þar á meðal í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og barnaverndarlögum.

Þegar sú leið var lögð upp var ekki gert ráð fyrir að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála færi með eftirlit með gæðum þjónustu sem heyrði undir annan ráðherra en þann sem fer með yfirstjórn stofnunarinnar, eins og reyndin er nú. Þessar aðstæður hafa kallað á rýni á reglugerðir og reglugerðarheimildir þar sem lögð hefur verið áhersla á að straumlínulaga málsmeðferð en að á sama tíma skuli vera skýrt að heimildir til að setja reglugerðir séu í höndum þess ráðherra sem fer með yfirstjórn og eftirlit á viðkomandi sviði. Niðurstaða þessarar rýni er sú að rétt sé að gera breytingar á 84., 86. og 91. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002, og 34. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga þar sem ákvæðin eru færð til fyrra horfs með því að bæta við þau sambærilegum reglugerðarheimildum og voru í gildi fyrir gildistöku laga nr. 88/2021. Þannig er skýrt að sá ráðherra sem fer með yfirstjórn og eftirlit með starfsemi sem þar er fjallað um hafi heimildir til að setja reglugerðir um starfsemina. Þá hefur rýni á ákvæðum barnaverndarlaga leitt í ljós mistök við setningu laga nr. 107/2021 sem rétt er að lagfæra.

Virðulegi forseti. Meginefni frumvarpsins má skipta í þrjá þætti. Í fyrsta lagi er lagt til að settar verði sértækar heimildir til setningar reglugerða í barnaverndarlög sem finna má í gildandi lögum. Í 2. mgr. 38. gr. gildandi barnaverndarlaga er að finna heimild fyrir ráðherra til að setja nákvæmari ákvæði um meðferð barnaverndarmála í reglugerð, svo sem um tilkynningar, könnun, samþættingu þjónustu, gerð áætlana, úrræði og stafræna vinnslu. Þessi reglugerðarheimild er almenn og er talið fara betur á því að setja sértækari heimildir í barnaverndarlög líkt og lagt er til í frumvarpi þessu. Breytingin mun skjóta styrkari lagastoð undir reglugerðir sem settar hafa verið á grundvelli barnaverndarlaga, einkum reglugerð um úrræði á ábyrgð sveitarfélaga samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga, nr. 652/2004.

Í öðru lagi er með frumvarpi þessu lagt til að ráðherra mennta- og barnamála verði veitt heimild til að setja reglugerðir á grundvelli VII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Í reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum, nr. 907/2005, sem sett var áður en framangreindar lagabreytingar tóku gildi, er að finna nokkuð ítarleg ákvæði um skilyrði leyfisveitinga, málsmeðferð, ábyrgð og skyldur foreldra og dagforeldra sem og um málsmeðferð leyfisveitinga og um eftirlit með starfseminni. Um er að ræða starfsemi sem snýr að þjónustu við ung börn og fjölskyldur þeirra sem mennta- og barnamálaráðherra fer með yfirstjórn og eftirlit með. Því er mikilvægt að ráðherra hafi skýra heimild til að útfæra nánari reglur um þessa starfsemi í reglugerð þótt eftirlit með gæðum þeirrar þjónustu sem um ræðir sé á ábyrgð Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.

Í þriðja og síðasta lagi er lagt til að lagfært verði orðalag 85. gr. barnaverndarlaga en vegna mistaka var orðinu barnaverndarnefnd í lögunum breytt í barnaverndarþjónusta í stað Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála með lögum nr. 107/2021, um breytingu á barnaverndarlögum. Í ákvæðinu segir nú að þeir sem óski eftir að taka að sér hlutverk stuðningsfjölskyldu skuli sækja um leyfi barnaverndarþjónustu í sínu heimilisumdæmi. Slíkt er ekki í samræmi við lög um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, en þar segir í 5. gr. að einkaaðilum sem hyggjast veita þjónustu er lýtur eftirliti Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála sé skylt að afla rekstrarleyfis áður en byrjað er að veita þjónustu sem lýtur eftirliti stofnunarinnar. Breytingin kemur í veg fyrir túlkunarvafa um hvort stuðningsfjölskyldur þurfi leyfi bæði frá barnaverndarþjónustu og Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Virðulegi forseti. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er fjallað um að lokið verði við heildarendurskoðun barnaverndarlaga. Í mennta- og barnamálaráðuneytinu er yfirstandandi vinna við heildarendurskoðun laganna sem fram fer í víðtæku samráði við alla hagaðila og er fyrirhugað að leggja fram drög að frumvarpi á vorþingi. Þó tel ég mikilvægt að gerðar séu breytingar nú á barnaverndarlögum sem lagðar eru til með frumvarpi þessu sem ég mæli hér fyrir þar sem mikilvægt er að tryggja skýrar heimildir ráðherra til setningar reglugerðar á málefnasviðinu.

Virðulegi forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis.