154. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2023.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.

543. mál
[10:54]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Orri Páll Jóhannsson) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Ég er með eina einfalda spurningu til hans sem mér þætti vænt um að fá svar við. Ber okkur sem á hlýðum að skilja það sem svo að hv. þingmaður vilji ekki að við tökum þátt í þessu viðskiptakerfi um losunarheimildir? Með öðrum orðum, ber þá að skilja það þannig að hv. þingmaður vilji ekki að við leggjum okkur fram um það að reyna að stemma stigu við loftslagsvánni með öllum tiltækum aðgerðum, þ.m.t. þátttöku í þessu ETS-kerfi?