154. löggjafarþing — 111. fundur,  14. maí 2024.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1541, um ávinning sjálfvirknivæðingar og gervigreindar, frá Indriða Inga Stefánssyni. Einnig hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1528, um sálfræðiþjónustu fyrir Grindvíkinga, á þskj. 1529, um slys af völdum drifskafts, og á þskj. 1543, um ávinning sjálfvirknivæðingar og gervigreindar, allar frá Indriða Inga Stefánssyni. Þá hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 1496, um nefndir á vegum ráðuneytisins og kostnað vegna þeirra, frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur.