154. löggjafarþing — 119. fundur, 10. júní 2024.
lengd þingfundar.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en hvað þingsköp kveða á um. (Gripið fram í: Óska eftir atkvæðagreiðslu.) Það er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta og mun atkvæðagreiðslan fara fram að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma.