15.09.1917
Sameinað þing: 7. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2293 í B-deild Alþingistíðinda. (2395)
191. mál, milliþinganefnd til að íhuga fossamál landsins
Jóhannes Jóhannesson:
Í till. á þgskj. 949 er ekkert það, sem takmarkar val stjórnarinnar í þessa nefnd, og þar sem nú háttv. þingmenn eru ósamþykkir um það, hvort þingmenn eigi að benda á menn í nefndina, þá verð jeg að líta svo á, að stjórnin sje gersamlega óbundin í þessu efni og geti því ekki varpað neinu af ábyrgðinni í valinu yfir á þingið eða einstaka flokka þess.