29.06.1918
Neðri deild: 59. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í C-deild Alþingistíðinda. (1668)
107. mál, verðlagsnefndir
Frsm. (Sigurður Stefánsson):
Þar sem þetta er 1. umr. um málið, og þar að auki er gerð rækileg grein fyrir frv. í nefndarálitinu, þá finn jeg eigi ástæðu til að gera frekari grein fyrir því og vildi óska, að hv. deild leyfði frv. að ganga til 2. umr.