16.07.1918
Neðri deild: 73. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 747 í C-deild Alþingistíðinda. (2123)

96. mál, verðlag á vörum

Frsm. (Sigurður Stefánsson):

Jeg vildi að eins skjóta því til hæstv. stjórnar, hvernig sem fer um frv. í hv. Ed., hvort hún finni ekki ástæðu til að nota ekki heimild þá, sem henni er veitt í verðlagsnefndarlögunum, sökum þeirra breyttu kringumstæðna, er orðið hafa síðan heimildin var veitt?