10.06.1918
Neðri deild: 45. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 710 í B-deild Alþingistíðinda. (662)
93. mál, bráðabirgða útflutningsgjald
Framsm. (Magnús Guðmundsson):
Jeg vil að eins benda á það, að meiri hluti frv. er um það, að öll tilhögun skattsins skuli vera reglugerðaratriði. Viðaukatillaga er því með öllu óþörf.