24.04.1923
Efri deild: 47. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 860 í C-deild Alþingistíðinda. (2600)

97. mál, vaxtakjör

Guðmundur Ólafsson:

Jeg heyrði ekki, að hv. 4. landsk. þm. (JM) kæmi með rök á móti því, að frv. fengi að ganga til 3. umr. Jeg sje ekki, að neitt sje því til fyrirstöðu að greiða atkv. á móti frv. við 3. umr., þó að því hafi verið leyft að ganga svo langt.