28.04.1923
Neðri deild: 52. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 917 í C-deild Alþingistíðinda. (2661)
48. mál, bæjarstjórn á Siglufirði
Stefán Stefánsson:
Jeg ætla aðeins að taka það fram, að eftir atvikum hlýt jeg að sætta mig við þessar breytingar háttv. allshn. á frv. En jeg geri þetta í fullu trausti þess, að þegar bæjarstjórnarlög kaupstaðanna verða tekin til endurskoðunar, þá verði tekið tillit hinnar sjerstöku afstöðu Siglufjarðar, gagnvart ýmsum þeim málum, er þann kaupstað varða.