09.04.1923
Efri deild: 35. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í B-deild Alþingistíðinda. (581)

24. mál, fjáraukalög 1922

Jón Magnússon:

Það er aðeins formleg athugasemd til stjórnarinnar. Jeg tek eftir því, að till. um ábyrgðina er frá atvrh., en ætti samkvæmt venju að koma frá fjrh. Þetta er ekki þýðingarmikið, en jeg tel rjettara frá formsins hlið, að slíkt komi frá fjrh.