06.05.1926
Efri deild: 68. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1159 í C-deild Alþingistíðinda. (2616)

106. mál, hæstiréttur

Forseti (HSteins):

Allar nefndir í þessari hv. deild hafa að minni hyggju starfað svo vel og samviskusamlega, að jeg hefi hingað til á þessu þingi ekki sjeð ástæðu til að minna þær á mál, sem þær hafa til meðferðar.

Jeg þykist þess fullviss, að hv. allshn. vilji í þessu máli eins og öðrum sýna svo fljóta afgreiðslu sem henni er unt.