14.04.1928
Neðri deild: 72. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 2653 í B-deild Alþingistíðinda. (2479)

17. mál, gin- og klaufaveiki

Magnús Guðmundsson:

Jeg tók eftir því, að hæstv. forsrh. sagðist mundu fara eftir ráðum dýralæknis, eða m. ö. o. gera það sama og jeg gerði í hans sessi. Jeg vil aðeins minna hann á, að fyrir það, að jeg fór svo að í minni ráðherratíð sem hann nú segist ætla að gera og sjálfsagt hefir gert, hefir hann skrifað um mig 10–20 skammagreinar í blaði sínu.