03.04.1928
Neðri deild: 64. fundur, 40. löggjafarþing.
Sjá dálk 3737 í B-deild Alþingistíðinda. (3443)

92. mál, síldarbræðslustöðvar

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg vil aðeins minna hv. 2. þm. G.-K. á það, að það, sem til mála getur komið að gera á næsta þingi, er að setja nýtt ákvæði inn í lögin, en til þess þarf nákvæmlega sama atkvæðafjölda sem til þess þarf nú að koma þessu ákvæði inn í frv. En annars tel jeg víst, að fyrir næsta þing verði lagt frv. um rekstur bræðslustöðvanna, og þar á þetta ákvæði einmitt heima.