27.04.1929
Neðri deild: 55. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 1646 í B-deild Alþingistíðinda. (792)
16. mál, fjárlög 1930
Jón Ólafsson:
Það fór svo sem jeg bjóst við, að þunt mundi móðureyrað í hæstv. dómsmrh., er jeg kom að óheilindunum. Jeg benti á leikaraskap hans og óheilindi í bannmálinu. Jeg var ekki að áfellast það, þótt áfengislögin gengju í gegnum þingið í fyrra. Þau voru borin fram í Ed. og afgr. hjeðan með styrk hans manna. Það voru skiftar skoðanir meðal templara um það, hvað í þeim sje gott og hverju sje ofaukið. Sumir töldu öllu því ofaukið, er miðar að því að njósna um einstaka menn, og þótti það alveg tilgangslaust. Um þetta var deilt í fyrra og um þetta er deilt enn. Þó jeg flytti, þá ekki brtt. við frv., hefi jeg enn ekki breytt skoðun minni um óhollustu laganna á ýmsum siðferðissviðum. Sumt, sem í þeim lögum stendur, hefir orðið bindindis og bannmálinu til hins mesta tjóns. En hæstv. dómsmrh. hefir sjeð það einu leiðina til að koma ýmsu í framkvæmd að skjóta sjer undir gott málefni. En þegar að því kemur að styrkja það málefni raunverulega, þá draga þeir flokksmenn hans sig í hlje þrátt fyrir dýr loforð. Þetta vítti jeg og þetta er að verða meiri leikaraskapur kringum mál þetta en holt er Hæstv. dómsmrh. taldi þessa starfsemi njósnir um einstaka menn vera aðhald að ofdrykkjunni. En það veit hann sjálfur, að aldrei var drukkið meira en á þeim tíma, er harðast var gengið eftir þessu. Menn fara þá einungis í skúmaskotin, en halda sig ekki á opinberum stöðum. Þetta er málefninu til tjóns. Slíkar ráðstafanir eru ekki gerðar af vitsmunum eða þekkingu á mannlegu eðli. En sumir, er þykjast þurfa að koma ýmsu öðru í framkvæmd, hafa lag á að skjóta sjer undir þessi mál. Það er eins og alt starf hæstv. dómsmrh. gufi upp í njósnarstarfsemi og útgáfu áfengisskýrslna, er kostar stórfje, en er málefninu að engu liði. Það er einungis eltingarleikur til að varpa skugga á eina vissa stjett manna, læknana.
Jeg sje ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum. Það stendur nokkurnveginn á sama, hvort tillagið til stórstúkunnar verður hækkað úr 8 þús. kr. upp í 10 þús. kr. Það gerir lítið til ef að öðru leyti verður farið með málið betur en gert hefir verið og sá leikaraskapur, sem viðhafður var á síðasta þingi, verður ekki endurtekinn.