15.02.1930
Neðri deild: 28. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1675 í B-deild Alþingistíðinda. (2255)
41. mál, sala jarðarhluta Neskirkju og ríkissjóðs
Pétur Ottesen:
Ég vil aðeins vekja athygli á því, sem stendur í grg. frv., þar sem sagt er, að fengizt hafi samkomulag við prestinn um sölu jarðarhlutans, að það er þeim skilyrðum bundið, að ríkissjóður eða kirkjujarðasjóður byggi eða kaupi sæmilegt íbúðarhús og afhendi sóknarpresti sem prestssetur með aðgengilegum kjörum. Ég vil benda á það, að hingað til hefir gilt sú regla, að styrkur hefir aðeins verið veittur til bygginga á prestssetrum í sveitum, en ekki til íbúðarhúsa fyrir presta í kaupstöðum. Mér skilst, að ef þetta frv. verður samþ., þá sé tekin ákvörðun um, að ríkissjóður skuli styrkja íbúðarhús presta í kaupstöðum. Ég vil aðeins vekja athygli n., sem fær þetta frv. til meðferðar, á þessu atriði.