05.04.1930
Neðri deild: 72. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í D-deild Alþingistíðinda. (3401)

154. mál, milliþinganefnd

Magnús Guðmundsson:

Mér er kunnugt um, að hv. 1. þm. Reykv. vék af fundi áðan í þeirri vissu, að þetta mál yrði ekki tekið til umr. fyrr en í fyrsta lagi kl. 5, þegar fundi heldur áfram eftir kaffihléið. Mér finnst því óviðkunnanlegt, að þetta mál skuli vera tekið til umr. meðan hv. þm. er fjarverandi og á þess engan kost að mæla fyrir till. sinni.