11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 547 í C-deild Alþingistíðinda. (4980)

171. mál, samkomudagur Alþingis árið 1935

Thor Thors:

Mér þætti æskilegt, að það kæmi fram í þessum umr., hvernig hæstv. forsrh. lítur á það, að tekin verði upp sú aðalregla, að þing verði kallað saman á haustin.

Annars vil ég vekja athygli hv. þingheims á því, sem hæstv. forsrh., foringi „lýðræðisflokkanna“ hér á landi, lét í ljós í þessu sambandi. Hann sagði, að bezt væri vitanlega að reyna að losna við þingið. Þarna finnst mér koma fram hugur hæstv. ráðh. til þingsins. Ég vil undirstrika þessi ummæli hæstv. forsrh.